Wednesday, March 12, 2008

Skeggjópartý

Hæ, hæ

Takk fyrir síðast, frábærar móttökur Vignir og Svana! Sé svona "hitting" nú alveg fyrir mér tvisvar á ári, t.d. í haust. Svo má náttúrulega alltaf hittast í Heiðmörkinni í sumar með menn, konur og börn og skella nokkrum pylsum á grill og skemmta okkur saman, krakkarnir okkar hefðu örugglega gaman af því. Er ekki annars ættarmottóið ,,þetta er allt gert fyrir börnin"? Finnst a.m.k. að ég hafi heyrt þetta ansi oft á ættarmótunum hér í denn!

Kveðja, Vigdís.

2 comments:

Sigríður said...

Jú jú, mikið rétt. Allt gert fyrir börnin. Og ég tala nú ekki um ef menn eru með einn öllara við hönd með grillinu ;-) Þá er þetta orðið alveg eðal skeggjó.

Anonymous said...

He, he..., nákvæmlega!