Friday, April 25, 2008
















Svona skemmtum við okkur nú alltaf vel saman. Eru ekki allir tilbúnir í stóra plottið í maí? Það verður tekið vel á því.





Sunday, March 30, 2008

Humarsúpa

Borðaði brjálæðislega góða humarsúpu um daginn í hádeginu sem framreidd var fyrir fjölda manns. Langaði bara að vita hvort einhver vissi hvaða aðferðir voru notaðar við eldamennsku súpunnar. Hún var geðveikislega góð. Takk pent og sælir, manstu eftir því?
Langaði einnig að vita hvort útskriftarplottið væri byrjað að hvissast út og hvort að fólk geri sér grein fyrir því hvað plottið er?
Einnig vantar mig aðstoð við því hvernig bregðast eigi við þegar maður hellir brúnuðum kartöflum ofan á sjóðheita eldavélahellu þegar 4 manns eru í húsi.
Hef ekki bloggað áður, les ekki blogg þannig að ég veit í raun og veru ekki hvað gerist á þessum síðum. Afsakið, langaði bara að prófa.

Wednesday, March 12, 2008

Skeggjópartý

Hæ, hæ

Takk fyrir síðast, frábærar móttökur Vignir og Svana! Sé svona "hitting" nú alveg fyrir mér tvisvar á ári, t.d. í haust. Svo má náttúrulega alltaf hittast í Heiðmörkinni í sumar með menn, konur og börn og skella nokkrum pylsum á grill og skemmta okkur saman, krakkarnir okkar hefðu örugglega gaman af því. Er ekki annars ættarmottóið ,,þetta er allt gert fyrir börnin"? Finnst a.m.k. að ég hafi heyrt þetta ansi oft á ættarmótunum hér í denn!

Kveðja, Vigdís.

Friday, March 7, 2008

Takk fyrir síðast

Hæ öll.

Takk fyrir samveruna hjá Vigni. Held við verðum að gera þetta að árlegum (jafnvel 2svar á ári) atburði. Hlakka til að sjá ykkur öll sem fyrst aftur og heyra sem mest af ykkur hér á þessari síðu.

Kveðja Sigga.